Kardio og Arion banki hafa undirritað samstarfssamning og frá byrjun árs 2027 verða kort frá Arion banka í boði í Kardio. Þar með eykst úrval fyrirtækjakorta sem hægt er að nota í Kardio og þjónusta við viðskiptavini Kardio verður enn breiðari.
Samstarfið tengir sérþekkingu Kardio á greiðslum og útgjaldastýringu við styrk, reynslu og traust vörumerki Arion. Það er næsta skref í vegferð Kardio, sem var stofnað árið 2023 til að sameina greiðsluþjónustu og hugbúnað í eina lausn sem byggir á því að gera fyrirtækjum kleift að nýta gervigreind með öruggum hætti til að hámarka vinnusparnað og þægindi í útgjaldaferlum sínum. Þannig getur Kardio vaxið hraðar og boðið enn fleiri íslenskum fyrirtækjum betri lausnir í fjármálum.
„Við viljum gera útgjaldastýringu fyrirtækja eins gagnsæja og sjálfvirka og hægt er. Samstarfið við Arion er mikilvægt skref fyrir Kardio, þar sem reynsla bankans og sérhæfing Kardio vinnur saman. Við völdum að vinna með Arion vegna þess að bankinn hefur bæði burðina og viljann til að þróa þjónustu sína á þeim hraða sem fyrirtæki gera kröfu um í dag. Við erum rétt að byrja og hlökkum til að sjá fleiri fyrirtæki ná betri tökum á útgjöldunum.“
– Arnar Jónsson, framkvæmdastjóri Kardio
„Á síðustu árum höfum við unnið markvisst að því að auðvelda fyrirtækjum að sinna daglegum fjármálum og nýtt tæknina til að einfalda ýmsa ferla sem áður gátu verið tímafrekir. Samstarfið við Kardio er rökrétt framhald á þeirri vegferð. Við rýndum í markaðinn og komumst að þeirri niðurstöðu að lausn Kardio væri sú flottasta sem er í boði í dag hvað útgjaldastýringu varðar. Við erum með þá stefnu að vinna með öflugum fjártæknifyrirtækjum – þar er gróskan og krafturinn sem við viljum vera með í að virkja – og erum því mjög spennt fyrir framhaldinu.“
– Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka
Um Kardio
Kardio er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem hjálpar fyrirtækjum að halda utan um öll útgjöld á einum stað – greiðslukort, innkaupareikninga og útlagðan kostnað – og nýtir gervigreind til að draga úr handvirkri vinnu við reikninga, kvittanir og bókhald. Kardio kom á markað í byrjun árs 2025 og hefur á stuttum tíma orðið að kjarnalausn í fjármáladeildum fjölda íslenskra fyrirtækja.
Nánari upplýsingar
Arnar Jónsson, framkvæmdastjóri Kardio – arnar@kardio.is

