Einfaldar og hraðar greiðslur
Með Apple Pay getur þú greitt hratt og örugglega með Kardio kortunum þínum beint úr símanum þínum eða snjallúri.
Persónuvernd og öryggi er innbyggt í Apple Pay
Apple Pay notar öryggiseiginleika sem eru innbyggðir í Apple tækinu þínu - þar á meðal Face ID og Touch ID - sem eru hannaðir þannig að aðeins þú getur heimilað greiðslur.
Borgaðu á netinu og í appi. Það er auðvelt með Apple Pay
Með Apple Pay fyllast upplýsingar eins og nafn þitt og heimilisfang sjálfkrafa í greiðsluskrefi. Nú er hraðvirkara að greiða en nokkru sinni fyrr.
Það er einfalt að bæta kortunum þínum við Apple Pay með Kardio appinu.
Fyrsta skref er að tryggja það að þú sért að notast við nýjustu útgáfu Aur appsins.
Opna Kardio appið
Velja kort og ýta á Bæta korti í Apple Wallet
Fylgja skrefunum sem gefin eru upp og samþykkja skilmála
Lifkenni
Fingraskanni
Spurt
og svarað
Er öruggt að borga með Apple Pay?
Kortaupplýsingarnar þínar eru öruggar af því þær eru ekki geymdar á tækinu og því ekki deilt þegar þú borgar. Greiðsla í næstu búð, í appi eða á netinu er auðveld, örugg og hugað er að persónuvernd.
Hversu háa upphæð er hægt að greiða með Apple Pay?
Það eru engin takmörk á hversu há uppæðin er sem þú getur borgað með nema sú sem er til ráðstofunar á kortinu.
Kostar eitthvað að borga með Apple Pay?
Það kostar ekkert að nota Apple Pay
Hvað er sýndarnúmer (e. Token)?
Sýndarnúmer er númer sem tengt er við kortanúmer greiðslukortsins. Það lítur alveg eins út og kortanúmer og um tóken gilda sömu skilmálar og um debet- og kreditkort. Sé því hins vegar stolið er það verðlaust. Apple Pay notar sýndarnúmerið við greiðslur og er þannig raunverulega kortanúmerið aldrei notað sem tryggir öryggi.
Get ég séð yfirlit yfir færslur í Apple Pay?
Já þú sérð 10 nýjustu færslurnar í Apple Wallet.
Hvar er hægt að borga með Apple Pay?
Í öllum verslunum, á netinu og í öppum.
Hvað gerist ef ég týni símanum mínum eða ef honum er stolið?
Mikilvægt að þú hafir samband við neyðarþjónustuna okkar til þess að láta loka kortinu þínu.
Ef ég er með kort tengt við bæði símann minn og úrið mitt, hefur það áhrif á úrið ef ég eyði kortinu úr símanum og öfugt?
Nei engin áhrif. Hvert tæki hefur sitt sýndarnúmer (e. Token).