Kardio er nú í boði fyrir öll íslensk fyrirtæki. En hvað er Kardio og hvernig virkar þetta?
Hingað til hafa útgjöld fyrirtækja verið of atvinnuskapandi fyrir fjármáladeildir og bókhald. Fyrirtæki greiða mun hærra fyrir útgjöld en þau átta sig á. Hver greiðsla skapar halarófu af verkefnum svo gögn skili sér og útgjöld skráist rétt í bókhaldið. Kardio aðstoðar fyrirtæki við að gjalda minna fyrir kortaútgjöldin og bylta verkferlum með greiðslukort.
Við vinnum fyrir fyrirtækin okkar og við drögum banka að borðinu til að veita þeim lausnir á réttan hátt. Kardio er tæknilega framsækið fyrirtæki sem byggir stafrænar brýr til að veita sjálfvirkari útgjöld og bókhald.
Mörg hundruð klukkustundir á ári í sparnað
Kardio safnar saman kvittunum, sem sparar starfsfólki pappírsvinnu. Upplýsingarnar um greiðslur eru sjálfkrafa fluttar yfir í bókhaldskerfið þitt, án þess að þurfa mánaðarlega að gera upp greiðslukort! Það munar um minna þar sem sérfræðingar í bókhaldi hafa nefnt 3-5 klst vinna að gera upp eitt greiðslukort sem er í reglulegri notkun. Fyrir 10 greiðslukort eru það 30-50 klukkustundir í mánuði eða 360 klukkustundir á ári! Þá er ekki tekið inn í vandamál sem handhafar korta lenda í, týndar kvittanir og sem finnast hvorki í hanskahólfum né úlpuvösum.
Öflugir tengimöguleikar
Innleiðing Kardio í fyrirtæki er einföld og geta fyrirtæki byrjað að gefa út Kardio greiðslukort samdægurs eftir að þau ákveða að nota lausnina. Kardio sendir gögn yfir í öll bókhaldskerfi með sjálfvirkum hætti eða eftir pöntun. Við bjóðum [öflugar vefþjónustur](https://apidoc.kardio.is/) sem gera fyrirtækjum kleift að samþætta innri kerfi sín við Kardio og þannig flæða stillingar og gögn á milli þessara kerfa í rauntíma.

