Fréttir

Kardio valið í þróunarverkefni Visa Europe

Íslenska fjártæknifyrirtækið Kardio var nýlega valið sem eitt af átta fjártæknifyrirtækjum til þátttöku í nýju þróunarverkefni Visa Europe. Verkefnið snýr að því að tengja Kardio við sérfræðinga Visa, fjárfesta og aðra samstarfsaðila Visa.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að markmiðið sé að nýta tækniinnviði Visa til að styðja við frekari vöxt og útbreiðslu lausna, sem auki gæði og skilvirkni í greiðslukortum, greiðslumiðlun og fyrirtækjarekstri. Þetta opni Kardio dyr inn á evrópska markaði og skapi tækifæri til frekara samstarfs við banka og fjártæknifyrirtæki víða um heim.

Kardio hafi á stuttum tíma fest sig í sessi á íslenskum fyrirtækjamarkaði sem öflug lausn í útgjaldastýringu. Fjöldi meðalstórra og stærri fyrirtækja á Íslandi hafi nú þegar innleitt lausnina og nýti hana daglega til að einfalda stjórnun útgjalda, greiðslukorta og bókhalds.

„Við erum stolt af því að vera tekin inn í þetta verkefni og að fá viðurkenningu frá aðila á borð við Visa. Þetta er staðfesting á því að sú nálgun og viðskiptamódelið sem við erum að byggja upp á Íslandi á fullt erindi á alþjóðlegan markað,“ er haft eftir Arnari Jónssyni, framkvæmdastjóra Kardio.