Enginn þolir kostnaðarskýrslur og handvirka vinnu sem skilar engu. Einfaldaðu ferlið og fjarlægðu óþarfa utanumhald svo þú getir einbeitt þér að því sem raunverulega drífur fyrirtækið áfram.
Skipta þessar kvittanir virkilega svona miklu máli?
Það kemur mörgum á óvart hversu mikla áherslu fjármálastjórar og bókarar leggja á að kvittanir skili sér. Þegar ferlið við að skila þeim er flókið, frestar starfsfólk því oft – og þá týnast kvittanirnar. Skortur á bókhaldsgögnum veldur vandræðum í bókhaldinu og getur lækkað endurheimt virðisaukaskatts. Það er því alvarlegt mál þegar kvittanir skila sér ekki í bókhald fyrirtækisins.
„Ég var nornin í bókhaldinu“
„Áður en við tókum upp Kardio leið mér eins og norninni í bókhaldinu,“ segir Berglind fjármálastjóri og viðskiptavinur Kardio.
„Ég var stöðugt að minna fólk á kvittanir sem vantaði og það var farið að forðast mig. Fólk játaði sökina aftur og aftur – en ekkert breyttist.
Nú notum við Kardio sem áminnir starfsfólk um að skila kvittunum um leið og greiðsla fer fram og heldur sjálfkrafa áfram að minna þá sem gleyma sér. Kvittanaskil hafa batnað verulega og nú skila um 95% kvittana sér fljótlega eftir greiðslu.
Og nornin í bókhaldinu? Hún er farin!“
Fyrirtækið borgar hærri skatta en það þarf
Ef útgjöld eru ekki studd kvittunum borgar fyrirtækið oft hærri skatta, því það missir af tækifærum til að nýta bókhaldslegan ávinning sem það á rétt á – til dæmis þegar sótt er um endurgreiðslu virðisaukaskatts. Vel skráð útgjöld geta einnig skipt sköpum þegar sækja á um opinbera styrki eða greina rekstrartölur fyrirtækisins betur.
Skatturinn krefst skilanna
Óreiða í bókhaldi og ófullnægjandi kvittanaskil getur vakið tortryggni hjá skattayfirvöldum, sem gætu farið að kanna hvort fyrirtækið stundi dulbúnar launagreiðslur undir formerkjum útgjalda. Skattayfirvöld taka slíkt mjög alvarlega – staða sem öll fyrirtæki vilja forðast.
Hafðu samviskuna í lagi
Kardio hjálpar bæði starfsfólki og stjórnendum að halda bókhaldinu í lagi – og þar með samviskunni líka. Þannig getur teymið þitt einbeitt sér að því sem skiptir máli án þess að hafa áhyggjur af óreiðu sem safnast upp bak við tjöldin.

