Nýtt vörumerki Kardio leggur áherslu á einfaldleika og kjörnun á vandamálum sem fjármáladeildir glíma við. Fjármáladeildir sinna krefjandi starfi þar sem stöðugt þarf að endurmeta áætlanir sem verða úreldar um leið og þær eru birtar. Þetta er þó þeirra mikilvægasta verkefni og því eru önnur dagleg verkefni og handavinna tengd útgjöldum eitthvað sem flestir ættu að vilja losna við.
„Ég eyddi meiri tíma í að samþykkja og endurgreiða smáútgjöld en að vinna að fjármálaáætlun félagins næstu mánuði og ár. Það er eitthvað bogið við það."
- Fjármálastjóri og viðskiptavinur Kardio
Við viljum að vörumerkið minni okkur og viðskiptavini okkar á fyrir hvað við stöndum. Við leitum að óreiðu hvar sem hún kann að finnast í verkferlum fjármáladeilda og við fögnum henni því þar liggja tækifæri til að koma á skipulagi.
Gott eða slæmt?
Fjármálastjórar þurfa stöðugt að endurmeta forgansröðun útgjalda og meta hvaða útgjöld eru best til þess fallin að drífa fyrirtækið áfram og hver ekki. Þetta er sérstaklega krefjandi þar sem hlutverk þeirra er bæði að vernda fjárhag fyrirtækisins með minni sóun en einnig að fjárfesta í vexti. Hægt er að færa góð og gild rök fyrir öllum útgjöldum, hvort sem það er fríðindi starfsfólks sem eykur starfsánægju, markaðskostnaður sem vekur athygli eða risna sem eykur viðskiptavild. Vandamálið er að þurfa samt að segja nei við flestar tillögur að auknum útgjöldum.
Loforð okkar til fjármálastjóra er að leita stöðugt að leiðum til að bæta upplýsingaflæði og yfirsýn til að taka betri ákvarðanir og stýringar til að fylgja þeim eftir.

