Kvittanir í tölvupósti eru orðnar ríkur þáttur í rekstri fyrirtækja, sérstaklega fyrir stafrænar áskriftir og netkaup. Eitt af því sem hægir hvað mest á kvittanaskilum er handvirka vinnan við að skila þessum kvittunum í bókhaldið. En vissir þú að þú getur gert þetta alveg sjálfvirkt?
Sjálfvirk áframsending kvittana til Kardio
Með einfaldri uppsetningu á síu (e. filter) í tölvupósthólfinu þínu geturðu látið póstinn þinn áframsenda allar kvittanir sjálfkrafa á [kvittanir@kardio.is](mailto:kvittanir@kardio.is). Þetta sparar þér tíma, tryggir að engin kvittun gleymist og lágmarkar handavinnu.

Hér færðu einfalda leiðbeiningu til að setja upp síu í Gmail sem áframsendir sjálfkrafa kvittanir á [kvittanir@kardio.is](mailto:kvittanir@kardio.is):
Skref 1: Skilgreindu hvaða póstar eiga að fara til Kardio
Á skjámyndinni hér að ofan sérðu hvernig þú getur:
- Stillt síu sem finnur orð eins og "kvittun", "receipt", "reikningur" eða "invoice"
- Valið frá hvaða sendendum þú vilt áframsenda (t.d. receipts@netflix.com, invoices@spotify.com)
Skref 2: Stilltu áframsendinguna á kvittanir@kardio.is
Á þessari skjámynd sérðu:
- Hvernig þú velur "Forward it to" valmöguleikann
- Hvernig þú slærð inn kvittanir@kardio.is í viðeigandi reit
Algengar spurningar um sjálfvirkar áframsendingar
**Geta allar tegundir tölvupósta nýtt síur?** Já, flestir algengir þjónustuaðilar eins og Gmail, Outlook og fleiri bjóða upp á þennan möguleika.
**Þarf tölvupóstur að innihalda kvittun sem skjal?** Kardio tekur bæði á móti tölvupóstum þar sem kvittun er viðhengi í tölvupóstinum en einnig þegar kvittunin er inni í tölvupóstinum sjálfum.
**Get ég sent kvittun frá hvaða tölvupóstfangi sem er?** Aðeins skráð netföng í Kardio geta sent kvittanir á kvittanir@kardio.is. Kardio getur því tekið við tölvupóstum frá netfanginu sem þú notaðir til að stofna Kardio aðganginn þinn, en þú getur einnig skráð ný netföng í Kardio og þá getur þú áframsent kvittanir frá þeim líka.
Einfaldaðu reksturinn
Með þessari einföldu uppsetningu geturðu sparað þér og þínu fyrirtæki dýrmætan tíma. Í stað þess að eyða mörgum mínútum á dag í að handleggja kvittanir geturðu látið tæknina vinna fyrir þig. Það eru alveg nógu margir boltar á lofti í rekstrinum og því mikilvægt að fækka þeim eins og hægt er. Sjálfvirk skil á kvittunum liggur vel við höggi.
Hafðu samband við okkur ef þú lendir í vandræðum með uppsetninguna – við erum alltaf til þjónustu reiðubúin.

