Það tekur ekki langan tíma að koma fyrirtækinu þínu af stað í Kardio. Hér eru helstu skrefin:
1. Stofnun aðgangs í Kardio
Þegar Kvika hefur samþykkt áreiðanleikakönnunina, fær prókúruhafi boð í tölvupósti um að taka stjórn á aðganginum.
2. Áreiðanleikakönnun hjá Kviku banka
Prókúruhafi félagsins byrjar á því að fylla út áreiðanleikakönnun hjá Kviku banka. Þetta er nauðsynlegt skref þar sem án samþykktrar könnunar er ekki hægt að stofna stafræn VISA kort fyrir félagið.
3. Stilling heimilda
Í áreiðanleikakönnuninni óskar félagið eftir heimildum frá Kviku. Kvika býður upp á mismunandi leiðir fyrir fyrirtæki sem fer eftir eðli rekstrarins og sögu félagsins. Stjórnandi ákveður hvaða leið hentar félaginu best.
4. Kynningarfundur
Að lokum bjóðum við öllum nýjum fyrirtækjum upp á frían kynningarfund. Þar förum við yfir helstu stillingar og aðstoðum við að sérsníða aðganginn svo hann henti rekstrinum sem best.
5. Fara af stað með einfaldari rekstur
Þegar þessu er lokið er ekkert annað í stöðunni en að njóta þess að reka fyrirtækið með einfaldari hætti. Með Kardio færðu tækin sem gera fjármálin léttari í vöfum, svo þú getir einbeitt þér að því sem skiptir mestu máli: að byggja upp fyrirtækið.

