
Matarútgjöld í fyrirtækjum virðast oft smámál á blaði, en í raun geta þau verið mjög tímafrek. Oft fara matarútgjöld í reikning en þá eru reikningar óljósir eða komi alltof seint. Þá endar bókhald eða stjórnendur á því að elta upplýsingar: hver var þetta, var þetta á vegum fyrirtækisins, hvenær gerðist þetta og hvers vegna - þessi endalausu aukaverkefni sem taka athygli frá því sem skiptir raunverulega máli í rekstrinum.
Stilltu kortin fyrirfram
Kardio er fyrir fyrirtæki sem vilja einfalda þetta ferli og koma meiri reglu á útgjöld án þess að bæta við óþarfa flækjustigi. Með Kardio er hægt að afhenda stafræn kort til starfsfólks sem eru sérstaklega stillt fyrir matarútgjöld. Það sem gerir þetta svo öflugt er að þú getur stjórnað kortunum nákvæmlega. Þú ákveður hvaða heimildir þau hafa og hversu mikið má nota á ákveðnu tímabili. Þannig eru reglurnar ekki bara orð á blaði, heldur hluti af kerfinu sjálfu.
Láttu Kardio sjá um aðhaldið
Og ef fyrirtæki vill fara skrefinu lengra í að halda utan um ferlið, þá er hægt að setja upp einfaldar reglur sem tryggja að kvittunum sé skilað. Til dæmis er hægt að stilla að kort loki sjálfkrafa tímabundið ef of mörgum kvittunum hefur ekki verið skilað og opnist svo aftur. Það minnkar eltingarleikinn enn frekar, því Kardio hjálpar til við að halda utan um agann, án þess að það þurfi stöðuga eftirfylgni.

Allt sjálfkrafa í bókhaldið
Svo kemur það sem margir vilja helst leysa: bókhaldið. Í Kardio er hægt að festa bókhaldslykil beint á kortið, þannig að allar færslur sem eiga sér stað með því korti fara sjálfkrafa inn í bókhaldið á réttan lykil. Þetta þýðir að færslurnar þurfa ekki að bíða eftir handvirkri flokkun eða leiðréttingum seinna meir. Reksturinn verður gagnsærri, kostnaðurinn skýrari og mánaðarlok verða einfaldari.
Ekkert mál að leysa óvæntu tilvikin
Það sem skiptir líka miklu í raunveruleikanum eru öll þessi óvæntu tilvik (e. edge cases) sem koma alltaf upp. Kannski á sama færsla að skiptast á milli deilda, eða hluti kostnaðar á að fara á einn bókhaldslykil en rest á annan. Í stað þess að slíkt verði að flóknum undantekningum sem þarf að laga handvirkt aftur og aftur, er hægt að splitta færslum á milli deilda og bókhaldslykla.
Í grunninn snýst þetta um að gera útgjöld eðlilegri hluta af rekstrinum, í stað þess að þau verði stöðug eftirá-vinna. Með stafrænum matarkortum, skýrum heimildum, sjálfvirkni í bókhaldi og möguleikanum á að leysa undantekningar á einfaldan hátt, hjálpar Kardio fyrirtækjum að einfalda ferla, minnka eftirvinnu og halda betri stjórn á kostnaði, án þess að það komi niður á sveigjanleika starfsfólks.



