
Treble Technologies er íslenskt tæknifyrirtæki sem starfar á alþjóðlegum markaði og þróar háþróaðan hugbúnað til að herma hljóð í raunverulegum og stafrænum umhverfum. Eins og oft gerist hjá hraðvaxandi fyrirtækjum fylgir slíkum vexti aukið flækjustig í rekstri, ekki síst þegar kemur að útgjöldum. Þegar teymi stækkar, áskriftum fjölgar og verkefni verða fleiri getur yfirsýn yfir kostnað fljótt orðið óskýr og ferlar tímafrekir.
Í daglegum rekstri Treble falla til fjölbreytt útgjöld og taka þarf hraðar ákvarðanir vegna innkaupa. Án einfaldra verkfæra þarf oft að treysta á handvirka vinnu, kvittanasöfnun og eftirfylgni sem tekur tíma frá mikilvægari verkefnum. Þar kemur lausn eins og Kardio inn með því að færa þessi ferli í eitt samfellt og sjálfvirkt flæði.
Hraðinn við stofnun og stýringu korta í Kardio er engu líkur og skiptir öllu fyrir félag eins og Treble sem keppir við tímann og vill lágmarka vesen og handavinnu. Við höldum utanum allar okkar áskriftir á Kardio kortum sem gerir okkur kleift að breyta hratt og stofna til nýrra viðskipta án áhættu. Svo færist þetta allt yfir í bókhaldið með skipulögðum hætti.

Guðlaug Guðmundsdóttir, fjármálastjóri Treble.
Með Kardio úthlutar Guðlaug, fjármálastjóri Treble, stafrænum fyrirtækjakortum til starfsfólks sem nýtast fyrir dagleg útgjöld, hvort sem um er að ræða kaup á hugbúnaði, almennan rekstrarkostnað eða ferðalög. Kortin eru stofnuð á örfáum sekúndum og stillt eftir þörfum hverju sinni, sem gerir teyminu kleift að framkvæma hratt. Fyrir áskriftir, sem eru stór hluti af rekstrinum, nýtir Treble sérhæfð kort til að halda utan um allan áskriftarkostnað og bregðast hratt við þegar þarf að breyta eða stöðva þjónustu.
Það sem skiptir einnig mestu máli er hvernig Kardio einfaldar eftirvinnsluna. Í stað þess að kvittanir týnist eða safnist upp geta starfsmenn skráð þær strax og tengt við færslur sem flæða sjálfkrafa áfram í bókhald. Þannig fær fjármálateymið skýra yfirsýn yfir útgjöld, án þess að þurfa að elta upplýsingar eða vinna gögn handvirkt.
Niðurstaðan er einfaldari og skilvirkari rekstur þar sem minni tími fer í umsýslu og meiri tími í það sem skiptir raunverulega máli. Fyrir Treble þýðir það að geta einbeitt sér enn frekar að því að þróa lausnir sem bæta hljóðupplifun.



