Kvittanir í tölvupósti eru orðnar ríkur þáttur í rekstri fyrirtækja, sérstaklega fyrir stafrænar áskriftir og netkaup. Eitt af því sem hægir hvað mest á kvittanaskilum er handvirka vinnan við að skila þessum kvittunum í bókhaldið. En vissir þú að þú getur gert þetta alveg sjálfvirkt?
Sjálfvirk áframsending kvittana til Kardio
Með einfaldri uppsetningu á síu (e. filter) í tölvupósthólfinu þínu geturðu látið póstinn þinn áframsenda allar kvittanir sjálfkrafa á kvittanir@kardio.is. Þetta sparar þér tíma, tryggir að engin kvittun gleymist og lágmarkar handavinnu.
Hvernig á að setja upp síu fyrir kvittanir
Hér færðu einfalda leiðbeiningu til að setja upp síu í Gmail sem áframsendir sjálfkrafa kvittanir á kvittanir@kardio.is:
Skref 1: Skilgreindu hvaða póstar eiga að fara til Kardio

[Hér kemur skjáskot 1 sem sýnir Gmail síu uppsetningu]
Á skjámyndinni hér að ofan sérðu hvernig þú getur:
Stillt síu sem finnur orð eins og "kvittun", "receipt", "reikningur" eða "invoice"
Valið frá hvaða sendendum þú vilt áframsenda (t.d. receipts@netflix.com, invoices@spotify.com)
Skref 2: Stilltu áframsendinguna á kvittanir@kardio.is

[Hér kemur skjáskot 2 sem sýnir uppsetningu á áframsendingu]
Á þessari skjámynd sérðu:
Hvernig þú velur "Forward it to" valmöguleikann
Hvernig þú slærð inn kvittanir@kardio.is í viðeigandi reit
Algengar spurningar um sjálfvirkar áframsendingar
Geta allar tegundir tölvupósta nýtt síur? Já, flestir algengir þjónustuaðilar eins og Gmail, Outlook og fleiri bjóða upp á þennan möguleika.
Þarf tölvupóstur að innihalda kvittun sem skjal? Kardio tekur bæði á móti tölvupóstum þar sem kvittun er viðhengi í tölvupóstinum en einnig þegar kvittunin er inni í tölvupóstinum sjálfum.
Get ég sent kvittun frá hvaða tölvupóstfangi sem er? Aðeins skráð netföng í Kardio geta sent kvittanir á kvittanir@kardio.is. Kardio getur því tekið við tölvupóstum frá netfanginu sem þú notaðir til að stofna Kardio aðganginn þinn, en þú getur einni skráð ný netföng í Kardio og þá getur þú áframsent kvittanir frá þeim líka.
Einfaldaðu reksturinn
Með þessari einföldu uppsetningu geturðu sparað þér og þínu fyrirtæki dýrmætan tíma. Í stað þess að eyða mörgum mínútum á dag í að handleggja kvittanir geturðu látið tæknina vinna fyrir þig. Það eru alveg nógu margir boltar á lofti í rekstrinum og því mikilvægt að fækka þeim eins og hægt er. Sjálfvirk skil á kvittunum liggur vel við höggi.
Hafðu samband við okkur ef þú lendir í vandræðum með uppsetninguna – við erum alltaf til þjónustu reiðubúin.